Sigurbjörn Sigurbjörnsson hefur óskað eftir því við stjórn SL lífeyrissjóðs að láta af störfum sem framkvæmdastjóri sjóðsins í maí á næsta ári eftir að hafa starfað hjá
sjóðnum í 37 ár, þar af sem framkvæmdastjóri síðan 1. október 1997. Guðmundur Stefán Steindórsson, sviðsstjóri áhættustýringar, mun taka við sem framkvæmdastjóri þann 1. júní 2025.