Séreignarsparnaður

Viðbótarsparnaður & tilgreind séreign

Hvað er séreignarsparnaður?

Séreignarsparnaður er sparnaður sem þú átt kost á að greiða í til viðbótar við lögbundinn lífeyrissparnað og er þín persónulega eign. Launþegar og sjálfstætt starfandi einstaklingar geta greitt allt að 4% af heildarlaunum sínum í séreignarsjóð og fá þá að jafnaði 2% í mótframlag frá vinnuveitenda.

Séreignarsparnaður, eða viðbótarsparnaður er eitt hagstæðasta sparnaðarform sem völ er á þar sem iðgjöldin eru undanskilin staðgreiðsluskatti og ávöxtunin undanskilin fjármagnstekjuskatti. Staðgreiðsluskattur greiðist af séreign þegar hann er greiddur út. Þá er séreignarsparnaður að fullu erfanlegur við fráfall sjóðfélaga. Séreignarsparnaður getur bæði nýst til kaupa á fyrstu fasteign eða til að auka við ráðstöfunartekjur, en séreignarsparnaður er laus til útborgunar eftir 60 ára aldurinn.

Tilgreind séreign

Nýrri tegund séreignar, tilgreind séreign, er aðgreind frá frjálsum séreignarsparnaði en hún var áður bundin í kjarasamningum ASÍ og SA á almennum vinnumarkaði. Tilgreind séreign var lögleidd fyrir alla launþega 1. janúar 2023 og gat þannig orðið hluti af skyldutryggingu sjóðfélaga. Framlag launþega helst óbreytt, en framlag vinnuveitenda hækkaði upp í 3,5% þannig að heildariðgjaldið nemur nú 15,5% í stað 12% áður.

Sjóðfélagar hafa val um að setja þetta aukna framlag vinnuveitenda að hluta eða alveg í tilgreinda séreign, eða láta iðgjaldið renna í samtryggingu fyrir aukin réttindi. Tilgreind séreign er ekki hefðbundin frjáls séreign og lýtur aðeins öðrum lögmálum, en sjóðfélagar verða sjálfir að taka ákvörðun um fara þessa leið. Sjóðfélagar geta þá að auki valið um að fara hefðbundna séreignarleið.

Hvernig ávöxtum við séreignina þína?

Þrjár leiðir að séreignarsparnaði

2–4% skattfrjálst viðbótarframlag

2% mótframlag frá vinnuveitanda

Myndar persónulega eign

Erfist að fullu

Val um að tilgreind séreign fari í sjálfstæðan sjóð eða verði hluti af skylduiðgjaldi til aukinna réttinda.

Hefja má úttekt við 62 ára aldur - alveg laus við 67 ára aldur.

Einkaeign sjóðsfélaga og erfanleg.

Ekki heimilt að ráðstafa inn á lán eða í annað sem sérstök úrræði stjórnvalda heimila.

Hægt að fá greidda út við örorku eins og frjálsa séreign.

Hluti af lágmarksiðgjaldi í lífeyrissjóð og skerðir greiðslur Tryggingastofnunar ríkisins (TR). Engar skerðingar hjá þeim sem þegar eru komnir á lífeyri eða hófu töku áramótin 2022–2023.

Þú getur valið á milli þriggja ólíkra leiða sem eru með mismunandi eignasamsetningu

Söfnunarleiðir I, II & III

Séreignarsparnaður - Spurt og svarað

Þú hefur val um að auka lífeyrissparnað þinn með allt að 4% skattfrjálsu viðbótarframlagi og fylgir því þá allt að 4% framlag frá vinnuveitanda og eru þau viðbótarprósent skattfrjáls.

Viðbótarsparnaður er þín séreign - þín bankabók. Hann er frádráttarbær frá skattstofni en lífeyrisgreiðslur eru skattlagðar eins og aðrar vinnutekjur.

Í boði eru þrjár söfnunarleiðir þar sem séreignarsparnaður er ávaxtaður með mismunandi áherslum; Söfnunarleið I sem er með lágmarkssveiflum í ávöxtun, Söfnunarleið II sem er með minni sveiflum í ávöxtun og Söfnunarleið III sem er með meiri sveiflum í ávöxtun. Lesa meira

Já, hægt er að nýta séreignarsparnaðinn við kaup á fyrstu íbúð, en einnig til að greiða inn á fasteignalán.

Þú getur hafið töku séreignarsparnaðar við 60 ára aldur og hefur val um að taka hann út í einu lagi eða dreifa greiðslunum.

Séreignarsparnaður er frádráttarbær frá skattstofni en lífeyrisgreiðslur eru skattlagaðar eins og hverjar aðrar vinnutekjur.

Já, hann erfist að fullu til eftirlifandi maka og barna.