Tilgreind séreign

Val um að tilgreind séreign fari í sjálfstæðan sjóð eða verði hluti af skylduiðgjaldi til aukinna réttinda.

Hefja má úttekt við 62 ára aldur - alveg laus við 67 ára aldur.

Einkaeign sjóðsfélaga og erfanleg.

Ekki heimilt að ráðstafa inn á lán eða í annað sem sérstök úrræði stjórnvalda heimila.

Hægt að fá greidda út við örorku eins og frjálsa séreign.

Hluti af lágmarksiðgjaldi í lífeyrissjóð og skerðir greiðslur Tryggingastofnunar ríkisins (TR). Engar skerðingar hjá þeim sem þegar eru komnir á lífeyri eða hófu töku áramótin 2022–2023.

Í hnotskurn:

  • Val er um að allt að 3,5% af samtryggingariðgjaldi umfram 12% fari í tilgreinda séreign eða
    verði hluti af skylduiðgjaldi til aukinna lífeyrisréttinda. Ef ekkert er valið, verður aukið framlag
    vinnuveitenda sjálfkrafa skilgreint sem hluti af skylduiðgjaldi. Hafa þarf samband við
    lífeyrissjóðinn ef sjóðfélagi vill velja.
  • Velji sjóðfélagi að tilgreind séreign fari ekki í aukin lífeyrisréttindi má úttekt hefjast við 62 ára
    aldur og verður hún alveg laus við 67 ára aldur (greiðsludreifing).
  • Tilgreind séreign er einkaeign sjóðsfélagans og erfist samkvæmt reglum erfðalaga.
  • Tilgreind séreign myndar sjálfstæðan sjóð í eigu sjóðfélagans. Hún getur því ekki myndað rétt
    til ævilangs lífeyris, heldur minnkar sjóðurinn með hverri úttekt þar til hann tæmist um síðir.
  • Tilgreindri séreign er ekki heimilt að ráðstafa inn á lán eða í annað sem sérstök úrræði
    stjórnvalda heimila að ráðstafa frjálsu séreigninni í.
  • Tilgreinda séreign er hægt að fá greidda út við örorku eins og frjálsa séreign. Tilgreind séreign
    myndar ekki lífeyrisrétt til örorku-, maka- eða barnalífeyris, nema hún sé hluti af
    skylduiðgjaldi.
  • Tilgreind séreign verður hluti af lágmarksiðgjaldi í lífeyrissjóð og mun þannig skerða greiðslur
    Tryggingastofnunar ríkisins (TR). Engar skerðingar verða hjá þeim sem þegar eru komnir á
    lífeyri hjá TR eða hefja töku um áramótin 2022–2023. Viðbótarséreignarsparnaður (frjáls
    séreign) sjóðfélaga þar sem hlutur launagreiðenda er 2% og launþega 4% hefur ekki áhrif á
    lífeyrisgreiðslur frá TR.

Spurt og svarað

Tilgreind séreign er tegund séreignarsparnaðar sem eykur sveigjanleika við starfslok. Tilgreind séreign greiðist með samtryggingu en hægt er að ráðstafa allt að 3,5% af iðgjaldi umfram 12% í tilgreinda séreign.

Tilgreind séreign er þín persónulega eign sem er jafnframt að fullu erfanleg.

Kjósir þú að ráðstafa umframiðgjaldi í tilgreinda séreign dregst sá hluti frá iðgjaldi til samtryggingar. Eign þín í samtryggingu verður þar af leiðandi minni sem því nemur.

Sé sjóðnum ekki sérstaklega tilkynnt um annað renna iðgjöld sem gætu farið í tilgreinda séreign í samtryggingardeild. Viljir þú ráðstafa iðgjaldi umfram 12% í tilgreinda séreign þarftu að fylla út Umsókn um tilgreinda séreign.

Tilgreinda séreign má byrja að taka út við 62 ára aldur.

Já, hún erfist til eftirlifandi maka og barna líkt og annar séreignarsparnaður.

Iðgjöld séreignarsparnaðar eru undanskilin staðgreiðsluskatti og ávöxtun er undanskilin fjármagnstekjuskatti. Við útgreiðslu þarf að greiða hefðbundinn tekjuskatt.