Merki SL lífeyrissjóðs

Merki sjóðsins var upphaflega teiknað árið 2000 þegar hann starfaði undir heitinu Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda. Árið 2018 var starfsheitið SL lífeyrissjóður tekið upp og merkið uppfært í núverandi mynd.

Form merkisins vísar í jafnvægi og styrk.

Merkið skal nota í tveimur litum, staðsett á hvítum grunni. Grátóna útgáfu til notkunar á hvítum grunni og útgáfu á dökkum grunni, skal eingöngu nota ef ekki er hægt að nota merkið í lit. Útgáfu merkisins með enskum undirtitli má einnig finna í hjálögðum gögnum.

Hér má sækja merki SL lífeyrissjóðs í CMYK, RGB og Pantone litum í eftirfarandi sniðum:

sl-logo.jpg
sl-logo.pdf
sl-logo.png
sl-logo.svg