Grunnur að þinni lífsleið
Eftirlaunalífeyrir leggur grunn að þinni lífsleið svo þú megir uppskera og njóta lífsins eftir starfslok. Almennur réttur til eftirlauna hefst við 67 ára aldur og með aðild að SL lífeyrissjóði ávinnur þú þér rétt til ævilangs lífeyris við starfslok í hlutfalli við greiðslu þína til sjóðsins.
Eftirlaunalífeyrinn er óháður öðrum tekjum og er greiddur mánaðarlega. Hægt er að flýta töku og byrja að þiggja ellilífeyri um 60 ára aldurinn en þá lækka greiðslur fyrir hvern mánuð sem er flýtt er um.
Í reiknivél Tryggingastofnunar er hægt að sjá hvernig þetta gæti komið út fyrir þig og fá hugmynd um hvað ellilífeyrir er hár. Á vef Tryggingastofnunar er einnig að finna upplýsingar um mögulegar skerðingar á ellilífeyri, vegna tekna sem geta áhrif á greiðslur ellilífeyris. Um leið og sótt er um lífeyri þarf að tilkynna um nýtingu persónuafsláttar og viðeigandi skattþrep.