Reiknivél
Lífeyrissjóðslán
Hér er hægt að reikna út áætlaða greiðslubyrði húsnæðislána. Þú færir inn forsendur og getur borið saman þær 3 lánaleiðir sem SL lífeyrissjóður býður sjóðfélögum upp á. Vinsamlegast athugaðu að niðurstöður útreikninga lánareiknivélar eru til áætlunar og ekki bindandi.
Vakin er athygli umsækjenda á reglum Seðlabanka Íslands um hámark greiðslubyrðar fasteignalána í hlutfalli við tekjur neytenda nr. 701/2022. Á grundvelli reglnanna skal mánaðarleg greiðslubyrði fasteignalána að hámarki vera 35% af mánaðarlegum ráðstöfunartekjum neytanda þegar fasteignalán er veitt, þó 40% ef lán er til að fjármagna kaup á fyrstu eign. Sjóðurinn hvetur umsækjendur um sjóðfélagalán til að kynna sér ofangreindar reglur Seðlabankans þar sem þær geta orðið til þess að sjóðurinn þurfi að hafna lánsumsóknum.