Lánabreytingar
Vinsamlega athugið að öllum breytingum á lánum þarf að þinglýsa og í sumum tilfellum þarf samþykki síðari veðhafa og ef til vill þarf að framkvæma greiðslumat.
Veðflutningur
Við kaup og sölu eigna er hægt að flytja lán á milli eigna.
Eftirfarandi gögn þurfa að berast sjóðnum við veðflutning:
- Umsókn um veðflutning á láni.
- Síðustu kvittun/kvittanir áhvílandi lána.
- Veðbókarvottorð (sjóðurinn getur útvegað veðbókarvottorð).
- Kaupsamningur.